Вход на сайт

Просмотр новости

Найдите то, что Вас интересует

Guterres: „Ekkert getur réttlætt“ hryðjuverkaárásir Hamas

Дата публикации: 07-10-2026 10:43:21

Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að „ekkert geti réttlætt þessi grimmdarverk“ í ávarpi í tilefni af því að þrjú ár eru liðin frá hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael 7. október 2023 Meira en 1.200 Ísraelar og erlendir ríkisborgarar voru drepnir og alls 251 manneskja var numin á brott og flutt sem gíslar inn á Gaza-svæðið, þar á […]
The post Guterres: „Ekkert getur réttlætt“ hryðjuverkaárásir Hamas appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.


Основное содержимое страницы с новостью.

Guterres með fjölskyldum ísraelskra gísla ásamt fastafulltrúa Ísraels. Guterres með fjölskyldum ísraelskra gísla ásamt fastafulltrúa Ísraels. Mynd: UN Photo/Manuel Elias.

Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að „ekkert geti réttlætt þessi grimmdarverk“ í ávarpi í tilefni af því að þrjú ár eru liðin frá hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael 7. október 2023

Meira en 1.200 Ísraelar og erlendir ríkisborgarar voru drepnir og alls 251 manneskja var numin á brott og flutt sem gíslar inn á Gaza-svæðið, þar á meðal konur, börn og aldraðir.

Guterres á blaðamannafundi. Guterres á blaðamannafundi. Mynd: UN Photo/Loey Felipe

„Óbreyttir borgarar voru vísvitandi skotmörk og myrtir á heimilum sínum, í samfélögum sínum og á tónlistarhátíð,“ segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri í ávarpi sínu. „Fangarar gíslanna beittu þá hryllilegu ofbeldi í haldi, þar á meðal pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð, auk kynferðisofbeldis. Sumir voru drepnir af föngurum sínum eða í átökunum sem fylgdu í kjölfarið. Ekkert getur réttlætt þessi grimmdarverk.“

Í ávarpi sínu segist Guterres persónulega hafa hitt fyrrverandi gísla og aðstandendur fórnarlamba og hlustað á frásagnir þeirra af þeirri raun sem þau gengu í gegnum. „Ég syrgi þá sem voru drepnir í árásunum og þá sem létust í haldi. Þjáningar þeirra og varanleg sorg fjölskyldna þeirra mega aldrei gleymast. Þessi hryllingur má aldrei endurtaka sig.“

Eyðilegging á norðurhlluta Gasa. Eyðilegging á norðurhlluta Gasa. Mynd: UNRWAÓmældar þjáningar Palestínumanna

Aðalframkvæmdastjórinn segir að hin hrikalegu átök sem fylgdu í kjölfarið hafi valdið Palestínumönnum á Gaza ómældum þjáningum, þar á meðal gríðarlegu manntjóni, vergangi og eyðileggingu. „Óbreyttir borgarar búa enn við óbærilegar aðstæður. Þjáningum þeirra verður einnig að linna, strax.“

Þótt vopnahléið í fyrra hafi veitt nokkurn létti segir Guterres að það hafi enn ekki skilað öryggi, fullnægjandi mannúðaraðstoð eða trúverðugri leið til endurreisnar og friðar. Hann hvetur alla aðila til að standa að fullu við skuldbindingar sínar og halda áfram í næsta áfanga vopnahlésins.

„Það er kominn tími til að vopnahléið verði varanlegt. Það er kominn tími til að leyfa mannúðaraðstoð í stórum stíl. Og það er kominn tími til að virða alþjóðalög.“

Схожие новости

#Наименование новостиТональностьИнформативностьДата публикации
1Guterres: ”Ingenting kan rättfärdiga” Hamas terrorattacker012.7607-10-2026
2Utanríkisráðherra: siðferðislegt hugleysi að neita að setjast niður og semja07.0126-09-2026
3Næsti aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna: umræður frambjóðenda í beinni útsendingu05.9523-07-2026
4Árásir á Alþjóðlega sakamáladómstólinn: 5 atriði sem þú þarft að vita08.4114-07-2026
5Volker Türk: Tíminn er að renna út varðandi gervigreind05.9906-10-2026
6Allsherjarþingið: Gervigreindin í fyrsta skipti í brennidepli07.6529-09-2026
7800 milljónir ungmenna horfa fram á framtíð án atvinnu09.4514-10-2026
8 Gazas sökande efter de döda fortsätter-2614-07-2026
9Masriin Hoggantoonni Biyyoota Arabaa Karoora Waa'ee Gaazaa Kan Tiraamp Dhiheessan Irraa Faallaa Waan Tahe Raggaasisan Jette07.5405-03-2025
10Israel: Angriffe der Hamas am 7. Oktober 2023 waren Verbrechen gegen die Menschlichkeit016.6111-12-2025

Классификация: . Схожих патентов: 0. Схожих новостей: 10. Тональность: 0. Информативность: 12.42. Источник: unric.org.