Suðurafríski mannréttindalögfræðingurinn Navanethem „Navi“ Pillay hlýtur friðarverðlaun Nóbels árið 2026.Pillay gegndi starfi mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna frá 2008 til 2014. Norska Nóbels-nefndin sagði í yfirlýsingu að Pillay hefði átt stóran þátt í að tryggja að stríðsglæpir, glæpir gegn mannkyni og þjóðarmorð væru sótt til saka. „Á tímum tilvistarlegra áskorana – þar á meðal fleiri stríða og […]
The post Navi Pillay fyrrverandi mannréttindastjóri SÞ hlýtur friðarverðlaun Nóbels appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.
Suðurafríski mannréttindalögfræðingurinn Navanethem „Navi“ Pillay hlýtur friðarverðlaun Nóbels árið 2026.Pillay gegndi starfi mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna frá 2008 til 2014.
Norska Nóbels-nefndin sagði í yfirlýsingu að Pillay hefði átt stóran þátt í að tryggja að stríðsglæpir, glæpir gegn mannkyni og þjóðarmorð væru sótt til saka.
„Á tímum tilvistarlegra áskorana – þar á meðal fleiri stríða og átaka en heimurinn hefur séð í langan tíma – eru alþjóðalög ekki lengur aðeins viðbót við frið og öryggi. Þau eru algjör nauðsyn,“ sagði í yfirlýsingunni.
Stýrði nefnd um herteknu svæðinPillay fæddist árið 1941 í Durban, ólst upp á tímum aðskilnaðarstefnunnar og varð ein af fyrstu konum af indverskum uppruna í Suður-Afríku til að starfa sem lögmaður. Hún varði baráttufólk gegn aðskilnaðarstefnunni og barðist gegn mismunun í aðbúnaði fanga.
Eftir lok aðskilnaðarstefnunnar varð hún dómari við Alþjóðlega sakamáladómstólinn fyrir Rúanda, þar sem hún átti þátt í að skapa tímamótafordæmi sem viðurkenndu nauðgun sem þjóðarmorðsverknað. Síðar gegndi hún embætti dómara við Alþjóðlega sakamáladómstólinn. Navi Pillay var áður formaður óháðrar alþjóðlegrar rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um hernumdu palestínsku svæðin en lét af því hlutverki síðla árs 2025.
| # | Наименование новости | Тональность | Информативность | Дата публикации |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Fjarri fyrirsögnunum – Sýrlenskir flóttamenn: jákvæð teikn á lofti | 0 | 12.6 | 09-10-2026 |
| 2 | Fjölvíð fátækt í heiminum eykst í fyrsta sinn frá 2010 | 0 | 10.49 | 13-10-2026 |
| 3 | Volker Türk: Tíminn er að renna út varðandi gervigreind | 0 | 5.99 | 06-10-2026 |
| 4 | Stigmögnun átaka í Mið-Austurlöndum ógnar fæðuöryggi um 12 milljóna kvenna | 0 | 14.14 | 05-10-2026 |
| 5 | – Hun er ikke kvalifisert til å vinne fredsprisen | 0 | 7.22 | 16-10-2026 |
| 6 | South African Lawyer Navi Pillay is 2026 Nobel Peace Prize Laureate | 0 | 14.78 | 14-10-2026 |
| 7 | 800 milljónir ungmenna horfa fram á framtíð án atvinnu | 0 | 9.45 | 14-10-2026 |
| 8 | Volker Türk: Við þurfum á nýrri Reykjavíkurstund að halda | 0 | 7.06 | 12-10-2026 |
| 9 | Brjóstakrabbamein: heilbrigðisáskorun á heimsvísu | 0 | 9.07 | 16-10-2026 |
| 10 | COP17, COP31: hvers vegna tvær COP-ráðstefnur? | 0 | 14.09 | 15-10-2026 |