Haustið er tími gönguferða hjá mörgum. Því er vert að benda á að yfir 200 leiðir hafa nú verið skráðar í miðlægt skráningarkerfi og gagnagrunn Ferðamálastofu um gönguleiðir og útivistarsvæði um land allt. Sjá má allar birtar leiðir á vef Ferðamálastofu.

Skólavarða á Vaðlaheiði er meðal leiða sem hægt er að fá upplýsingar um.
Haustið er tími gönguferða hjá mörgum. Því er vert að benda á að yfir 200 leiðir hafa nú verið skráðar í miðlægt skráningarkerfi og gagnagrunni Ferðamálastofu um gönguleiðir og útivistarsvæði um land allt. Sjá má allar birtar leiðir á vef Ferðamálastofu.
Fyrir hverja leið eru skráðar allar nauðsynlegustu upplýsingar, svo sem erfiðleikastig, vegalengd, hækkun, hættur, áætluð tímalengd og fleira. Kort af leiðinni sýnir einnig hæðarprófíl og hægt er að hlaða niður skrá með leiðarupplýsingum fyrir síma, snjallúr og GPS-tæki.
Miðla samræmdum og áreiðanlegum upplýsingumMarkmiðið með gönguleiðaverkefni Ferðamálastofu er að miðla samræmdum og áreiðanlegum upplýsingum um gönguleiðir á Íslandi og hvetja til ferðalaga, útivistar og náttúruskoðunar með ábyrgum og öruggum hætti. Verkefnið auðveldar ferðafólki að finna og velja gönguleiðir sem henta getu, reynslu og áhuga hvers og eins og stuðlar þannig að öruggri og ánægjulegri upplifun. Auk gönguleiða eru einnig skráðar leiðir sem henta fyrir hjól og hlaup.
Fyrir hverja?Verkefninu er ætlað að nýtast þeim sem vilja birta upplýsingar um leiðir á sínu svæði, t.d. markaðs og áfangastaðastofum landshlutanna og sveitarfélögum. Búið er að skrá leiðir um allt land en aðeins er misjafnt eftir landshlutum hversu margar.
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins tók verkefnið föstum tökum og þróaði vefinn Út um allt, upplýsingavef um útivistarmöguleika á höfuðborgarsvæðinu sem byggir alfarið á grunninum. Þá má einnig nálgast upplýsingar um leiðir í hverjum landshluta á vefjum Markaðsstofu Norðurlands, Markaðsstofu Vestfjarða og Markaðsstofu Vesturlands. Aðrir landshlutar áforma einnig tengingu við grunninn.
Á vef Ferðamálastofu má svo sjá allar birtar leiðir sem fyrr segir.
| # | Наименование новости | Тональность | Информативность | Дата публикации |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Könnun um áhrif lokunar 2G og 3G farsímakerfa á ferðaþjónustu | 0 | 4.83 | 19-08-2026 |
| 2 | Ferðamálastofa telur nú gesti Heimskautsgerðisins við Raufarhöfn | 0 | 8.59 | 21-09-2026 |
| 3 | Hættulegar aðstæður á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls | 0 | 9.31 | 25-08-2026 |
| 4 | Fagráð um öryggismál á Sólheimajökli tekið til starfa | 0 | 4.87 | 18-09-2026 |
| 5 | Endurskoðaðar leiðbeiningar og gátlistar vegna öryggisáætlana | 0 | 9.57 | 02-09-2026 |
| 6 | Atvikavaktin - örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila | 0 | 9.87 | 18-09-2026 |
| 7 | Frumvarp um náttúru- og innviðagjald lagt fram í Samráðsgátt | 0 | 5.33 | 23-09-2026 |
| 8 | Ferðamálaþing höfuðborgarsvæðisins 2026 | 0 | 15.21 | 07-09-2026 |
| 9 | 314 þúsund brottfarir erlendra ferðamanna í ágúst | 0 | 15.21 | 10-09-2026 |
| 10 | Björn hittade Islands första mygga: ”Folk blev som galna” | 0 | 6.94 | 23-09-2026 |