Loftslagsbreytingar eru að ná „martraðarkenndum hæðum“ vegna „fíknar“ mannkyns í jarðefnaeldsneyti að sögn yfirmanns loftslagsmála hjá Sameinuðu þjóðunum. „Loftslagsviðvörunarbjöllurnar hringja alls staðar,“ sagði Simon Stiell, framkvæmdastjóri loftslagsmála hjá Sameinuðu þjóðunum, í yfirlýsingu. „Þar sem búist er við að hitinn rjúki aftur upp í vikunni er hinn hræðilegi kostnaður þessarar loftslagskreppu – bæði mannlegur og efnahagslegur […]
The post Loftslagsbreytingar : aðvörunarbjöllur hringja hvarvetna appeared first on Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu - Iceland.
Loftslagsbreytingar eru að ná „martraðarkenndum hæðum“ vegna „fíknar“ mannkyns í jarðefnaeldsneyti að sögn yfirmanns loftslagsmála hjá Sameinuðu þjóðunum.
„Loftslagsviðvörunarbjöllurnar hringja alls staðar,“ sagði Simon Stiell, framkvæmdastjóri loftslagsmála hjá Sameinuðu þjóðunum, í yfirlýsingu.
„Þar sem búist er við að hitinn rjúki aftur upp í vikunni er hinn hræðilegi kostnaður þessarar loftslagskreppu – bæði mannlegur og efnahagslegur – nú að ná neyðarstigi á landsvísu.“
Simon Stiell ávarpar fund á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um hreina orku síðastliðinn föstudag. Mynd: Saranya Misra/OPGA
Af hverju það skiptir máli
Gróðureldar í Tasmaniu í Ástralíu (safn) Mynd: Matt Palmer/UnsplashStiell sagði að þessar „vaxandi hamfarir“ væru nú raunveruleiki milljarða manna í heiminum. Jörðin hitnar óðfluga á meðan mannkynið færist of hægt frá jarðefnaeldsneyti yfir í hreina orku – og tekst ekki að vernda skóga nægilega vel.
Vísindin um orsökina eru ótvíræð að hans sögn. Hnattræn hlýnun er knúin áfram af gríðarlegum bruna kola, olíu og gass. Slíkt gerir að hans sögn langvarandi hitabylgjur, alvarleg flóð og ofsafengna ofurstorma tíðari, öflugri og kostnaðarsamari.
„Það sem þarf að gera er jafn skýrt: Hætta notkun kola, olíu og gass hraðar, auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa og vernda fólk þar sem áhrifin eru þegar mest,“ sagði Stiell.
Mörg viðkvæm lönd í fremstu víglínu þurfa stuðning til að bregðast við með þeim hraða og í þeim mæli sem nauðsynlegt er til að koma í veg fyrir hamfarir.
| # | Наименование новости | Тональность | Информативность | Дата публикации |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Alþjóðadagur gegn mansali: Föst í svikamyllu | 0 | 10.66 | 30-07-2026 |
| 2 | Mikilvæg steinefni: faldar auðlindir sem knýja hreina orku | 0 | 6.87 | 22-07-2026 |
| 3 | Ísland endurnýjar stuðning sinn við bótasjóð fyrir fórnarlömb með frjálsu framlagi | 0 | 7.6 | 31-07-2026 |
| 4 | Næsti aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna: umræður frambjóðenda í beinni útsendingu | 0 | 5.95 | 23-07-2026 |
| 5 | ESB og Sameinuðu þjóðirnar: eitt nánasta samstarf sem um getur | 0 | 5.21 | 28-07-2026 |
| 6 | Stolið gull og gúmmíarabík fjármagna stríðið í Súdan | 0 | 7.22 | 16-07-2026 |
| 7 | Alþjóðlegur dagur frumbyggja: rödd Sama í heilbrigðisþjónustu | 0 | 6.48 | 07-08-2026 |
| 8 | Sofie Junge: loftslagsréttlæti á (fótbolta)vellinum | 0 | 7.99 | 24-07-2026 |
| 9 | Árásir á Alþjóðlega sakamáladómstólinn: 5 atriði sem þú þarft að vita | 0 | 8.41 | 14-07-2026 |
| 10 | Færri en helmingur ungbarna yngri en sex mánaða eru eingöngu á brjósti | 0 | 5.55 | 04-08-2026 |